Hugrún Björnsdóttir

Rithöfundur

Milli ástar og haturs (Kamilla #3)

Væntanleg 2026

Ólgandi ástríður, leyndarmál og svik

Sunneva hafði hlakkað til að fara í partí, hitta gömlu vinina og skemmta sér við að rifja upp háskólaárin. Endurfundir vinahópsins hljóta þó svipleg endalok þegar Sunneva fellur niður af svölum á efri hæð hússins. Lögreglan kallar réttarsálfræðinginn Kamillu Brim til aðstoðar við rannsókn málsins. Í ljós kemur að undir vináttunni krauma ólgandi ástríður, leyndarmál og svik sem eiga rætur langt aftur í tímann og hafa risið upp á yfirborðið. Datt Sunneva fram af svölunum? Lét hún sig falla? Eða var henni hrint?

Uns dauðinn aðskilur okkur (Kamilla #2)

Storytel, 2025

Ekki er allt sem sýnist

Réttarsálfræðingurinn Kamilla Brim er enn að takast á við dauða móður sinnar þegar lögreglan óskar eftir aðstoð hennar. Ungur maður hefur kært konu fyrir kynferðisbrot. Harðar ásakanir ganga á milli og samband þeirra er flóknara og nánara en virðist við fyrstu sýn. Kamilla þarf að greina milli sannleika og lygi sem runnið hafa saman í villuljós og dimman blekkingarvef.

Rót alls ills (Kamilla #1)

Storytel, 2024

Sumar játningar bjarga lífum. Aðrar rústa þeim

Réttarsálfræðingurinn Kamilla Brim neyðist til að segja skilið við ástina í lífi sínu, snúa heim á ný og annast dauðvona móður sína. Hún er rétt að koma sér fyrir í nýrri stöðu hjá Fangelsismálastofnun ríkisins, þegar Gísli Ágústsson, hrífandi og myndarlegur lögmaður óskar eftir sálfræðilegu mati á ungum manni sem játað hefur á sig morð.