
Hugrún Björnsdóttir (1988) er íslenskur rithöfundur.
Fyrsta bók hennar, Rót alls ills, kom út hjá Storytel árið 2024 og markaði upphafið að seríunni um Kamillu. Önnur bókin í seríunni, Uns dauðinn aðskilur okkur, var ein af tíu vinsælustu bókum Storytel árið 2025. Þriðja bókin í seríunni, Milli ástar og haturs, er væntanleg sumarið 2026.
Hún hefur komið fram á pallborðsumræðum bókmenntahátíðarinnar Iceland Noir en auk þess er hún penni og vefstjóri hjá Lestrarklefanum, samfélagi rithöfunda, ritstjóra og bókmenntaunnenda.