
Rót alls ills (Kamilla #1)
Storytel, 2024
Rómantísk spennusaga
Réttarsálfræðingurinn Kamilla Brim neyðist til að segja skilið við ástina í lífi sínu, snúa heim á ný og annast dauðvona móður sína. Hún er rétt að koma sér fyrir í nýrri stöðu hjá Fangelsismálastofnun ríkisins, þegar Gísli Ágústsson, hrífandi og myndarlegur lögmaður óskar eftir sálfræðilegu mati á ungum manni sem játað hefur á sig morð.
Fáanleg sem rafbók og hljóðbók á Storytel
Umsagnir úr Storytel appinu
Æðisleg bók og frábær frumraun höfundar! Vönduð persónusköpun og spennandi saga frá upphafi til enda! Mæli með
Kristín Björg
Flaug í gegnum þessa! Frábær frumraun höfundar! Spennt að sjá hvað kemur næst frá Hugrúnu. Krossa fingur að við fáum framhald.
Birna Harðardóttir
Virkilega góð frumraun höfundar! Frábær persónusköpun og útpældur söguþráður. Gat ekki lagt frá mér bókina og bíð spennt eftir (vonandi) næstu bók!
Aldís Erna
Nánar um bókina
Réttarsálfræðingurinn Kamilla Brim neyðist til að segja skilið við ástina í lífi sínu, snúa heim á ný og annast dauðvona móður sína. Hún er rétt að koma sér fyrir í nýrri stöðu hjá Fangelsismálastofnun ríkisins, þegar Gísli Ágústsson, hrífandi og myndarlegur lögmaður óskar eftir sálfræðilegu mati á ungum manni sem játað hefur á sig morð.
Eftir því sem rannsókn málsins vindur fram kynnast þau Kamilla og Gísli nánar, svo fljótt gneistar á milli þeirra og æ erfiðara reynist að þræta fyrir spennuna á milli þeirra. Hún er enn í sárum með hafið á milli sín og ástar sinnar. Samband Gísla hefur lengi staðið á brauðfótum og riðar nú til falls. Getur Kamilla leyft sér að loka fyrir fullt og allt á söknuðinn og sársaukann og opna fyrir ástina á nýjan leik þegar enn svíður í sárin?
Mitt í þessum ólgusjó þarf Kamilla að takast á við veikindi móður sinnar ásamt systur sinni Karlottu. Systurnar hafa ekki séð föður sinn síðan þær voru börn. Aðeins móðir þeirra veit hvað gerðist og brátt verður of seint að segja sannleikann.
Rót alls ills er rómantísk spennusaga þar sem glæpir, ástir og örlög fléttast saman og flett er ofan af gömlum fjölskylduleyndarmálum.

Playlisti
Hlustaðu á lögin, hljómsveitirnar og/eða tónlistarmennina sem talað er um í bókinni.